Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is
2.9.2010
Guðbjartur Hannesson Guðbjartur Hannesson var á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag skipaður í embætti félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra. Þessi háttur – að skipa sama mann í bæði embættin – helgast af því að fyrir Alþingi liggur stjórnarfrumvarp um að ráðuneytin tvö verði sameinuð í eitt velferðarráðuneyti. Gera má ráð fyrir að svo verði síðar á árinu.

Sem kunnugt er heyra málefni ... [Meira]
26.8.2010
Síðasti dagur Guðnýar í starfi Málefni fatlaðra munu flytjast frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót. Framundan eru því breytingar hjá starfsmönnum á skrifstofu SMFR þar sem störf þeirra verða lögð niður um áramót.

Guðný Waage fulltrúi, sem starfað hefur í afgreiðslu og símsvörun á skrifstofu SMFR, hefur látið af störfum eftir 2 ára starf hjá stofnuninni. Hún er að hefja nám við Háskóla ... [Meira]
25.8.2010
Fulltrúar gefenda og þjónustunotenda við afhendinguna Í vor bárust Hæfingarstöðinni við Hafnargötu í Keflavík styrkir til kaupa á flatskjársjónvarpi. Systrafélag Njarðvíkurkirkju, Lionsklúbburinn Æsa, Lionessuklúbbur Keflavíkur, Fagræsting og Árni Jakob Óskarsson gáfu öll myndarlega peningaupphæð til kaupanna. Leitað var tilboða og keyptur 42“ flatskjár ásamt "flakkara" frá fyrirtækinu Omnis í Keflavík.

Þann 1. júní var ... [Meira]
[Eldri fréttir]
Laus störf
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks í Reykjanesbæ. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum.
Skoða auglýsingu
Óskum eftir starfsfólki á hæfingarstöð í Kópavogi. Um er að ræða dagvinnu til frambúðar í starfi með einhverfum.
Skoða auglýsingu
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks og á hæfingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum og í dagvinnu. Leitum að félagsliðum og stuðningsfulltrúum.
Skoða auglýsingu
[ Skoða öll laus störf ]